|
|
15.11.2008 15:02:32 / þórunn
Já það er sko skuggalega stutt í jólin  en mikið hlakkar okkur til  ég er búin að standa á haus við baksturinn ,,búin að baka 280 stk af sörum ,og 5 sortir til viðbótar ,,guð má vita hvernig við lítum út eftir jólin  en eins og þið vitið að þá er kreppa og betra að vera í þykkara laginu ,svo maður hafi einhvern forða til að ganga á ef illa fer í kreppunni   það er allavegana mín afsökun  Róra var hérna í viku hjá okkur með börnin sín 3 , sem var náttúrulega bara æðislegt  en þvílík veikindi sem voru í gangi á meðan  sem kostaði okkur það ,að við komumst lítið út með börnin ,, en var samt bara gaman ,,minntum reglulega hvor aðra á að telja uppá tíu og anda INN ÚT INN INN ÚT þegar að börnin tóku sín köst  enda veikindi og piiringur í þeim   en við bíðum spennt eftir að þau komi aftur til okkar í sveitina   við fórum svo í skírnarveislu hjá Litlunni hans Jóns Gunnars og Guðrúnar og fekk hún nafnið Elsa Fanney ,mjög fallegt nafn  þetta var alveg gríðarlega flott veisla og var hún haldin í fellsborg það eru allir að drepast úr spenning hér á bæ ,því að hún Þoka er hvolpafull og er von á hvolpum eftir ca 8-10 daga samkvæmt okkar útreikningi   við fórum með hana á Akureyri til Pjakks sem er hreinræktaður silkiterrier með ættbók eins og hún ,,,og tókst þetta hjá þeim í þetta skiptið   vorum búin að para þau saman áður og gekk ekki þá ,enda óreynd í þessu bæði þá   Siggi tengdó var svo elskulegur að smíða gotkassa handa Þoku ,þannig að allt er nú reddí   en Aron minn er sko ekki sáttur við að selja hvolpana NEI TAKK EKKI TIL AÐ TALA UM MAMMA   heyrist bara frá honum ,en hann fær nú minnstu ráðið um það   jæja verð að fara að hnoða í deig á meðan að skvísan sefur og drengirnir að leika sér eru ekki allir komnir í jólaskap?????  
»
28.09.2008 23:58:14 / þórunn
ég kemst víst ekki upp með þetta lengur ...er örugglega komin á svartann lista hjá blogcentral.is af sökum leti við að blogga  en guð hvar á ég að byrja   hhmmmmm já þetta sumar er bara búið að vera frábært ,,tala nú ekki um veðrið dísus ,,klikkað gott alla daga ,,, Róra frænka mín ,ekki þín Inga) hehe ..... hún kom 3 sinnum í heimsókn í sumar og gisti hérna hjá okkur í góðu yfirlæti   við eigum börn á svipuðum aldri svo ég tali nú ekki um litlu hnáturnar okkar ,,aðeins mánuður á milli þeirra (mín er eldri) svo á hún 2 töffara eins og ég annar er 8 mán yngri en Sindri, og hinn er ári eldri en Aron   þannig að þetta gekk rosalega vel að vera með 6 börn hérna ,,og bara ótrúlega gaman ,,alltaf á röltinu í góða veðrinu ,,en við skulum ekkért vera segja frá því hvar göngutúrarnir enduðu  ég hélt uppá 30 ára afmælið mitt ,,og mikið skemmti ég mér ótrúlega vel,,,tók mig til og skellti mér í latex gallann sem að mamma saumaði á mig þegar að ég var 20 ára (hún saumaði á Hrefnu vinkonu líka,,þetta var fyrir menningarferð þá á sínum tíma ) jæja en viti menn ÉG PASSAÐI Í HANN   auðvitað var ég í honum allt kvöldið í kántrý líka   ég var rosalega ánægð með gjafirnar þær voru æðislegar   takk takk allir   já Inga þú ætlaðir að borga mér 20 þúsund ef ég passa í gallann þegar að ég verð 40 ára    en ég get bara sagt ykkur það að ég kem ekki til með að passa í hann þá miðað við ástandið eins og það er núna   ég er nebbla hætt að reykja og bara borða og borða og borða og borða MIKIÐ nammi   en ég tek á því fljótlega ,,ég var alveg búin að búast við einhverjum aukakílóum,,allt er skárra en að reykja er þaggi? allavegana finnst mér rosalega gott að kúra upp í sófa á meðan rigningin lemur á rúðurnar og ég þarf EKKI að fara út á pall að reykja í henni  það er eitthvað svo mikið sem ég ætlaði að skrifa en það er bara horfið úr kollinum á mér   Sindri fór í aðgerð í sumar og var einn sólahring inná Barnaspítala ,,gekk allt rosalega vel ,,  það er búið að banka hérna uppá einhver veikindi ,,haustfögnuðurinn   Aron ´búin ,Elísa er að enda og þá erum við 3 eftir bara   ekki nóg með að flensukvikindið vakni upp á þessum tíma ,,þá er það aumingja lúsin sem vill láta taka eftir sér   hún hefur sem beeetur fer ekki bankað hérna uppá ,en ég bíð ,,,því að það eru allavegana 20 krakkar í skólanum búin að fá hana og einhverjir foreldrar,,,lúsin þýtur hérna um eins og fellibylurinn IKE   það er bara einhver lúsar faraldur hérna í gangi ( KLÓR Í HAUS ) kamburinn mætir Aroni hérna í dyrunum eftir skóla   ég skal EKKI fá þetta,,,ég er alltaf að kemba og kemba,,það er farið að heyrast í strákunum NEI MAMMA  þú ert alltaf að þessu  það ganga allir um með buff á kollinum á ströndinni sér til varnaðar   mjög gott mál ,,vona bara að allir foreldrar standi saman og nái þessum fjanda burt  ég bauð mömmu og Sigga tengdó í mat í kvöld og Aron bauð Hörpunni sinni í mat líka  átum hérna dýrindis kjúklingabringur í eplapestói og fullt af meðlæti með ,,,svo var náttúrulega sunnudags ís í eftirrétt   skrítið að maður þyngist bara   Bjössi fór á sjóinn fyrir 9 dögum síðan ,,og við teljum bara niður þanga til hann kemur heim   Sindri alltaf að spurja hvenær pabbi komi heim   jæja ég er að verða stjörf af þreytu ,,enda örugglega fullt af stafsetningarvillum ,,nenni bara ekki að fara yfir þetta,, (geisp ) en verið nú dugleg að commenta ,,ég blogga um leið og það koma 10 comment (ef það eru 2 frá sömu manneskju,þá telst það sem eitt)  koss og knús
»
22.09.2008 13:31:31 / þórunn
Þú veist að það er 2008 ef.....
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun
»
27.07.2008 10:21:04 / þórunn
Þetta er rosalega dularfullt! > > > >Þú mátt alls ekki skrolla alveg niður strax > >því þá eyðileggur þú fyrir sjálfum/sjálfri þér ! > > >skrollaðu núna aðeins neðar > > > > > > > > > > >Hugsaðu um einhvern bókstaf frá A- Ö. > > > > > > > > > > > > >Segðu hann upphátt á meðan þú skrollar niður. > > > > > > > > > > > > >Haldu áfram.....ekki hætta . . .. > > > > > > > > > > >Hugsaðu um dýr sem byrjar >á þessum bókstaf. > > > > > > > > >Segðu upphátt hvaða dýr >þú ert að hugsa um á meðan þú skrollar niður. > > > > > > > > > > >Finndu núna annað hvort >kvennmanns- eða karlmannsnafn sem >byrjar á síðasta bókstafnum í dýra-nafninu! > > > > > > > > > > >Alveg að verða búin/n........ > > > > > > > > > > > > > >Núna skaltu telja stafina í nafninu >á puttunum á þeirri hendi sem þú ert ekki >að nota til að skrolla niður á músinni !. > > > > > > > > > > > > >Nú skaltu halda hendinni sem þú notaðir >til að telja á fyrir framan andlitið á þér ! > > > > > > > > > > >Horfðu inn í lófann..og > >einbeittu þér að línunum í lófanum! > > > > > > > > >Sérðu línurnar mynda fyrsta stafinn í nafni manneskjunnar sem þú >hugsaðir um ? > > > > > > > > > > > > > >AUÐVITAÐ EKKI........ > > > > > > > > >Nú skaltu slá þig fast utan >undir bjáninn þinn og > >hætta svo að taka þátt í svona >bull leikjum!
»
22.06.2008 01:14:09 / þórunn
»
31.05.2008 16:03:22 / þórunn
jamm og jæja þá ,,við byrjum bara á læknafréttum  Elísa Bríet fór í fullt af rannsóknum og svæfingu og flr í rvk ,,og það kom allt vel út   sem betur fer tóku læknarnir þessu mjög alvarlega og skoðuðu hana frá toppi til táar,þeim fannst hún líka með óvenju háan blóðþrysting og vildu tengja það við nýrun,,en það var allt í góðu með þau   en málið er að hún hefur legið meira með hægri hliðina af höfðinu svo lengi í grindinni þegar að ég gékk með hana ,og svo hefur það magnast eftir að hún fæddist ,,,það sem að kom útur þessu öllu er að höfuðkúpan er semsagt skökk á henni ,,en það á að lagast milli 1-2 ára aldurs   mikill léttir hér á bæ  Sindri fór í aðgerðina fyrir sunnan ,,hann fékk rör og nefkirtlarnir fjarlægðir ,,gékk allt mjög vel   nú heyrir hann allavegana betur greyið   við systurnar tókum höndum saman og héldum styrktartónleika fyrir Jón Gunnar og fjölskyldu ,það gékk allt mjög vel og það safnaðist 160.000 krónur þar   það komu fullt af tónlistarfólki fram ,sem að gaf alla sína vinnu ,alveg ómetanlegt ,,þakka ég öllum fyrir þann mikla og góða stuðning  við skruppum í sumarbústað í 2 daga í vikunni ,sem er ekki frásögufærandi ,nema það að ég spurði kelluna sem á bústaðinn hvort að það væri ekki örugglega heitur pottur ,,hún alveg jú jú það er við öll húsin heitir pottar  svo var verðið dáldið mikið hátt ,,jamm 11.500 krónur einn sólahringur ,,ég hugsaði mig um og ákvað að slá til ,,fór inná fagravik.is og sá aðeins myndir þar af bústaðinum þar... en svo mætum við á svæðið ,,og jújú það var svona skel en ekki rafmagnspottur  við semsagt þurftum að setja tappan í botnin og láta renna í hann eins og í bað ,,ekkért rafmagnsdót í honum til að halda honum heitum  GLATAÐ og ekki nóg með það ,,þá stóð á einum miða þarna að við þyrftum að borga 100 kr á hvern rúmmeter af vatni í pottinn  hún var nú ekkért að segja manni það ,,,svo toppaði það nú ,þegar að við sáum tóman kartöflupoka(netapoki)hanga á vegginum inni í bústað og miði fyrir ofan sem stóð á VINSAMLEGAST LÁTIÐ FLÖSKUR OG DÓSIR Í ÞENNAN POKA OG SKILJIÐ HANN EFTIR Í BÚSTAÐINUM    bara snilld Bjössi fer út á sjó á miðvikudaginn í fyrsta skiptið eftir að Elísa Bríet fæddist   það á eftir að verða mjög skrítið að vera ein með 3 börn  ég og mamma fórum í gær á laugarmýri og fengum smá kaupæði á blómum í garðinn  ég smellti mér strax útí garð í gær og gróðursetti þau og lagaði aðeins þessi gömlu ,,nú fer þessi fýlingur að koma í mig og vera í garðinum öll kvöld   jæja ætla að skella mér á sjómannadagsball í kvöld og skemmta mér mjög vel   Linda er svo elskuleg og ætlar að hafa litluna mína yfir nóttina og Siggi verður með strákana   ég læt fylgja með linkinn á lagið sem að Inga söng til Jón Gunnars á styrktartónleikunum ,, við fengum Rúnar Kristjánsson til að semja texta við erlent lag um Jón Gunnar http://www.youtube.com/watch?v=fteh_6H7VkIjæja læt þetta duga í bili ... koss héðan
»
18.05.2008 23:36:05 / þórunn
»
30.04.2008 09:53:39 / þórunn
ég ætla að byrja á því að segja ykur frá Jóni Gunnari,,ég stal uppl af síðunni hennar Ingu   En síðustu 3 vikur hafa verið okkur ansi erfiðar  Og harkaleg áminning um það hvað lífið er dýrmætt. Litli bróðir stendur sig eins og hetja, enda með eindæmum þrjóskur og sterkur. Opnar augun og setur upp þumalinn til að gefa okkur "ókei" merki! Hreyfir sig og brosir til okkar öðru hvoru. Hver einasta litla hreyfing eða tjáning er kraftaverk og sigur í okkar augum, enda var erfitt að kveðja hann síðustu helgi, hann var svo vel vakandi og hlustaði á okkur spjalla við sig og prufaði meira að segja að skrifa aðeins. Það var svo gaman að sjá hvað hann er að koma til baka, en góðir hlutir gerast hægt, og stuðningurinn hér í okkar litla samfélagi er ótrúlegur og ómetanlegur. Fólk greinilega stendur saman þegar á reynir. hann átti 25 ára afmæli í gær ,, við höldum bara stóra veislu þegar að hann kemur heim  hann er komin af gjörgæsludeildinni og inná heila og taugadeild, Ég fór með Sindra til háls nef og eyrnalækni á föstudaginn,,og fékk þær fréttir að barnið heyrir mjög ílla, læknirinn fór með heyrnamælitæki í eyrun á honum og sýndi mér á skjánum að það kom bara FLÖT lína en það á að koma á skjáinn svona eins og FJALL ,,það er svo mikið slím og eitthvað sem hann heyrir ekkért fyrir   en hann er með gríðarlega stóra hálskirtla og nefkirtla ,þannig að hann vill fá að byrja á því að setja rör í eyrun á honum og taka nefkirtlana ,,vildi aðeins geyma hálskirtlana ,því að það er meiri aðgerð og ath hvort að þetta dygði ,,en hann Sindri minn er nýbúin að missa rörin úr eyrunum sem hann fékk þegar að hann var 8 mánaða,,hann er algjört eyrnabarn greinilega,, ég fór með hann til læknis í fyrradag(mánudag) því að hann grét alla sunnudagsnóttina með svo mikla eyrnabólgu aftur og 40 stiga hita  læknirinn skoðaði hann vel og ákvað að láta taka blóð úr honum,,því að hann er núna búin að vera lasin í 17 daga ,hann hresstist að vísu eitthvað af þessum dögum en aldrei að fullu,svo er hann búin að vera að kvarta um í maganum síðan í Janúar og er allur í marblettum og með bólgna eitla og svo fölur að sjá svona öðru hvoru og ég tala nú ekki um lystarleysið ,,en allavegana þá ákvað læknirinn að ath hvítu og rauðu blóðkornin hjá honum,sem að komu ágætlega út ,,hvítu blóðkornin eiga að vera 10.000 en eru 17.000 aðeins of mikið en hann vildi samt meina að það stafaði af eyrnabólgunni ,en við eigum að fylgjast vel með honum fram á sumar ,ef hann fer að verða eitthvað óvenju oft veikur eða slappur  við förum suður á sunnudaginn í læknastúss,,Elísa Bríet á að koma á barnaspítalann á mánudagsmorgun í skoðun og svo á þriðjudaginn í svæfingu fyrir segulómmyndatökuna ,sem betur fer á hún tíma kl 8 því að hún á að fasta  en hún á að vera þar inni þar til seinnipartinn til að jafna sig ,, við ætluðum að reyna að fá tíma fyrir Sindra hjá meltingarsérfræðingi á miðvikudeginum eða í vikunni en það gékk ekki upp,allt upppantað fram í miðjan Maí , en ég býð hérna eftir símtali frá H N E lækninum ,erum að vona að hann geti tekið Sindra í aðgerðina á fimmtudeginum fyrir sunnan ,reyna að nýta þessa ferð ,svo að við þurfum ekki að fara nokkrar   já þetta er svo sannkallað LÆKNABLOGG ,en vonum bara að allt komi flott út úr þessum veikindum og rannsóknum og getum farið að anda léttar  jæja Elisa Bríet kallar  verið svo endilega dugleg að commenta 
»
29.04.2008 23:41:57 / þórunn
Til hamingju með 25.ára afmælið þitt ,elsku Jón Gunnar minn.... ég vildi að ég gæti knúsað hann núna til hamingju með daginn ,en hann fær bara STÓRT knús á sunnudaginn  ég reyni að blogga á morgun elskurnar mínar
»
15.04.2008 23:53:48 / þórunn
hæ hæ og takk fyrir allar kveðjurnar elskurnar mínar ,, það gefur okkur mikinn styrk af vita hvað margir hugsa til okkar og Jón Gunnars ...
það er svosem engar góðar fréttir sem að ég get sagt frá ,því miður  honum er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeildinni ,,, það er búið að prófa að taka af honum lyfið til að sofa ,það var gert í gærmorgun en hann var svæfður aftur í nótt ,, strákurinn er ekki alveg tilbúin í að vakna strax ,, æjj veit svosem ekki hvað ég á að skrifa um þetta meira ,meðan að þetta er allt svo óljóst alltsaman, 
ég og Inga komum norður í gær en ég fer aftur á morgun suður til Jón Gunnars...
en svona að öðru máli ,en samt spítalamáli
Elísa Bríet fór í 3 mánaða skoðun í síðustu viku ,og þá báðum við lækni um að skoða höfðið á henni ,því að ef að maður horfir niður á kollinn á henni ,þá er ennið á henni skakkt = bólgin á helmingnum af enninu og niður kinnina ,,hann sagði okkur að fara á Akureyri með hana til barnalæknis ,,sem við gerðum ,og þá var hún send í röntgenmyndatöku og svo var ómað höfuðið hennar ,,enn það kom allt vel út ,,en okkur gefin tími í segulómmyndatöku sem að við fórum með hana í dag (þess vegna kom ég norður) hún þarf að sofa í þessu tæki svo að hún verði kyrr ,þannig að okkur var sagt að halda henni vakandi í 2 tíma áður en hún kæmi í þessa myndatöku og svo ætti ég að gefa henni og þá ætti hún að sofa þetta af sér (einmitt) ég var nú ekki bjartsýn á það ,sem var rétt hjá mér ,,þvílíku lætin í þessu tæki ,,, þetta átti að taka ca 40 mín en við náðum 10 mín = 2 myndum sem er ekki gott ,,þannig að við vorum látin fara upp og tala við barnalækni og vita hvað hún vildi gera ,,hún sagði æjæj hún hefur ekki getað sofnað almennilega ,,þá svaraði ég henni fljótt og spurði hana FYRIRGEFÐU EN HEFURÐU KOMIÐ INNÍ ÞETTA HERBERGI Á MEÐAN AÐ TÆKIÐ ER Í GANGI ?? ég var svo fúl og pirruð enda um margt annað að hugsa líka,,,en við eigum að koma með hana aftur á þriðjudaginn og þá verður hún svæfð en þarf að vera inni í 4 tíma á eftir, undir eftirliti ,það er svo mikil hætta á öndunarerfiðleikum og að þau æli eftir svæfingu svona ung ,,, en þetta er bara sem að þarf að gerast ...
Sindri minn er orðin mjög slappur ,ég var rétt komin að sunnan í gær þegar að við þurftum að rjúka inná Blönduós með hann í gærkvöldi til læknis ,,hann er þá komin með eyrnabólgu ofan í pestina sem að hann er með ,ætlum að fara með hann á morgun til læknis til að ath streptakokkasýkingu ,,hann er svo slappur strákurinn 
segjum þetta í bili kv Þórunn
»
13.04.2008 00:08:24 / þórunn
»
01.04.2008 14:47:13 / þórunn
já mér dettur nú bara í hug ,hana Ingu systir þegar að 1 apríl er   
það var hérna fyrir nokkrum árum þegar að ég náði nú að gabba hana  þá hríngdi ég í Ingu (þá bjó hún í rvk) og hérna fyrir neðan ætla ég að skrifa samtalið  
ÉG: hæ hvað segist ?
INGA:bara fína
ÉG: ertu búin að heyra eitthvað í Lindu systir
INGA : nei
ÉG :nú þannig að þú ert ekki búin að fá fréttirnar ?
INGA : ha hvaða fréttir
ÉG : nú hún Linda er ólétt ,með fjórða barnið á leiðinni (púff) (þá var hún ekki búin að eignast Freydísi)
INGA : HHAAA Í ALVÖRU OOHH ÆÐI ; ji ég ætla að hringja snöggvast í hana og óska henni til hamingju
ÉG : ok ég heyri bara í þér seinna ...
svo hringdi hún í Lindu
LINDA : halló
INGA :HÆÆÆ JIIII TIL HAMINGJUUUU
LINDA : já takk fyrir það (hélt að Inga værir að hringja og óska henni til hamingju með Gunnþór ,því að hann á afmæli 1 APRÍL  Lindu fannst nú e-ð skrítið að hún hefði verið að hringja spes til að óska henni til hamingju með Gunnþór og líka svona hrillilega ánægð og kát  
INGA : oohh mér finnst þetta æðislegt
LINDA : ha já mér líka 
INGA : hvað ertu komin langt á leið ??
LINDA : HHAAAA ??
INGA : já Þórunn var að hringja í mig og segja mér fréttirnar að þú værir ófrísk  
LINDA : sprakk úr hlátri og sagði Inga það er 1 apríl og henni hefur tekist að gabba þig  
INGA : andskotinn ,heyrðu LInda ég heyri í þér seinna,ég ætla að hringja í Þórunni og DREPA hana í gegnum símann     
þetta var algör snilld ....
annars er allt gott að frétta héðan ,, Elísa Bríet stækkar og stækkar (eins og mamma sín)  farin að hlægja og alles ,,hún er bara yndisleg í alla staði ,,farin að sofa kl 8 á kvöldin til kl 7 á morgnana  sefur svo úti á daginn í 4 tíma  draumbarn 
VIð fórum með Þoku á Akureyri um helgina að hitta kærastan sinn hún er þar enn og vonandi kemur hún bara hvolpafull heim  en við söknum hennar mjög mikið hérna  
Bjössi og Sindri eru í rvk núna,þeir fóru í morgun og koma í kvöld ,,Sindri var að fara til barnaskurðlæknis og til háls nef og eyrnalæknis,, hann þarf að fara í eina skurðaðgerð seinna það er bara verið að skoða hann í þessari ferð,,svo vonandi vill háls nef og eyrnalæknirinn taka fljótlega hálskirtlana hans ,,það er ekki sjéns að hafa barnið uppí hjá manni á nóttinni ,hann hrýtur SKELFILEGA HÁÁÁTTT , við fórum með hann á Akureyri í Janúar og létum tjékka á .þessu þar ,,en læknirinn vildi ekki taka kirtlana fyrr en barnið væri byrjað að fá KÆFISVEFN og mikið frá vegna veikinda EINMITT ég ætla nefninlega svo mikið að fara að bíða eftir því NOT fer sko ekki aftur með hann þangað TAKK FYRIR  en jæja ég ætla að prjóna smá áður en hún Elísa Bríet vaknar ,,er að prjóna geggjaða peysu á hana  já mér fer e-ð fram í þessum prjónaskap 
»
24.03.2008 11:58:45 / þórunn
jæja ég ætlaði bara að segja ykkur að við erum búin að skíra  já við létum skíra hana á Skírdag og fékk hún nafnið ELÍSA BRÍET  ég fer svo að blogga fljótlega   koss og knús héðan
»
11.02.2008 23:42:08 / þórunn
Þetta er nú meiri bloggletin svona er þetta þegar að það líður svona langt á milli ,þá veit maður ekki hvar maður á að byrja en svona í grófum dráttum ,er margt og ekkért að frétta (hehe) daman dafnar vel , og strákarnir alltaf að ath með hana og kyssa og knúsa hana ,Sindri gerir ekki annað en að stinga hausnum ofan í vögguna hjá henni og finna lyktina af henni við erum ekki ENNNN búin að ákveða nafn á hana , ég get ekki gert það upp við mig hvaða nafn ég á að velja ,það eru svooooo mörg sem að mig langar í og finnst fara vel við hana ENNNN við getum bara ekki ákveðið okkur og margir búnir að koma með uppástungur með nöfn Aron er búin að koma með nafnið Sóley Sif því honum fannst það svo flott (hehe) ég sagði honum að litla systir Hallbjargar héti því nafni ,þannig að við gætum nú ekki skýrt okkar því nafni ,svo er búið að koma hjá honum SAGA,Þórey, og flr nöfn ,, en ég verð að fara að leggja hausinn í bleyti svo að hún fái nú nafn fyrir fermingu   ég skellti mér á þorrablót þar síðustu helgi ætlaði nú ekki að fara en kallinn vildi endilega að ég skellti mér með systrum mínum ,þannig að mín ákvað að drífa sig með bara enda sefur daman alla nóttina ,, ég ætlaði að fara að tuða um hvað hann ætti að gera og ekki gera ,en þá fékk ég bara til baka ´ÞÓRUNN MÍN , DÓTTIR ÞÍN VERÐUR ÁBBBYYYYGGILEGA Á LÍFI ÞEGAR AÐ ÞÚ KEMUR HEIM þannig að mín reyndi þá bara að fara áhyggjulaus út ur dyrunum ég skemmti mér mjög vel ,þá meina ég MJÖG VEL  en skemmti mér aðeins OF vel síðustu 20 mín  en tölum ekki meir um það (hehe) alltaf gaman að gera sig að fífli  Bjössi fór suður fyrir 2 vikum og keypti sér krossara ,þannig að ég sé hann örugglega lítið þegar að hálkan fer svo fór hann í morgun suður með Ragnari bróðir ,því að hann var líka að kaupa sér krossara  líst ekkért á þetta ,þeir verða allir á hækjum hérna innan skamms ,,, svo á Jón Gunnar bróðir eitt stk krossara líka,þannig að ,ég spái þessu allavegana annars langar mig nú að prófa að keyra þetta ,þetta er eflaust mjög gaman ,,,, já ég gleymdi nú alveg að segja ykkur að þegar ég kom heim af fæðingardeildinni,þá fékk Bjössi þessa skæðu pest ,upp og niður og var alveg frá ,svo deginum á eftir honum ,þá náðum við í Aron í skólann ,hann komin með ælupest,svo deginum á eftir Aroni var hringt úr leikskólanum og Sindri líka komin með ælupest ,svo mamma og Siggi líka ,þau voru búin að vera hérna ,,,en ég slapp alveg  og komnar 4 vikur síðan ,,, ég er svona að velta því fyrir mér hvort að þessi vibbi sé gengin yfir ?? djö ætla ég að vona það ....... haldið þið að ég hafi ekki eignast Kitchen aid hrærivél um daginn  er búin að vera með gamla kenwood frá Sigga og GUÐ hvað þessi er æðisleg,,,enda baka ég svo oft að ég hefði átt að vera LÖNGU búin að fá mér þessa ,en kom því aldrei í verk að panta hana en jæja ætla að hætta þessu hrærivélatuði hérna og fara að koma mér í háttinn   ég er byrjuð á barnalands síðu fyrir nafnlausu dömuna og ætla að setja hana hérna til hliðar á forsíðuna  og endilega komið með einhverjar nafnatillögur 
»
14.01.2008 13:35:14 / þórunn
já ég átti laugardaginn 5. janúar kl 9:56  við ákváðum að fara á Akureyri á föstudeginum ef ég skildi eiga um helgina,svo átti ég líka tíma í mónitor og skoðun á mánudeginum á Akureyri, Inga passaði Sindra og við tókum Aron með og mömmu svo að hún gæti verið með Aron ef ég skildi nú fara af stað við fengum sjúkraíbúðina til leigu ,,við vorum komin um kvöldmatarleytið á föstudagskvöldið, höfðum það bara gott um kvöldið öll saman , ég skreið inní rúm kl 2 um nóttina og vaknaði kl 4 tveimur tímum seinna við það að vatnið var að fara hjá mér  það fór allt á fullt ,ég vakti mömmu og Bjössa og hríngdi svo í Lindu systir og sagði henni að hún mætti leggja af stað til mín ,því að vatnið væri farið ,( hún var viðstödd hjá mér ) svo byrjuðu verkirnir að koma svona hægt og rólega,,Linda var komin kl 6 og við fórum uppá sjúkrahús kl 7 , ég var skoðuð kl 8 :30 og þá komin með 8 í útvíkkun,ég var hörð á því að ég ÆTLAÐI að fá mænudeyfingu núna , en þetta gékk svo hratt fyrir sig að ég fékk enga ,enda tók því ekki ,ég vildi ekki sjá gasið ,þannig að ég fór lyfjalaust í gegnum þessa fæðingu svo kom daman kl 9:56 14 merkur og 50 cm  Jón Gunnar og Guðrún komu til okkar seinnipart sama dag og komu þá með Sindra með sér til að sjá litlu systir mamma,Bjössi og strákarnir gistu í íbúðinni laugardagsnóttina ,og náðu svo í okkur skvísurnar á hádegi og svo brunuðum við heim í kotið okkar  sú stutta sefur bara og sefur ,algjört draumabarn ,smá með í maganum en ekkért til að kvarta undan jæja Sigga hjúkka er að koma og vikta skvísuna ,,heyrumst síðar ,,svo ætla ég að setja fleiri myndir hérna inn bæjó
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 40468
Dagsetning
10. febrúar 2012
|